Starfsemi KATLA Nordic

KATLA Nordic er félag kraftmikilla ungra íslenskra athafnarkvenna á Norðurlöndunum, sem starfar aðallega í Kaupmannahöfn.

Félagið er vettvangur fyrir meðlimi til þess að kynnast hvor annarri í gegnum skemmtilega og eflandi viðburði. Við höfum byggt saman sterkt tengslanet og þannig auka sýnileika og áhrif ungra athafnakvenna á Norðurlöndunum.


Hugsjón okkar er að konur úr ólíkum geirum geti lært af hvort annarri og með nýjum tengslum verði til driftkraftur til sköpunar nýrra hugmynda. Íslenskar konur eru þekktar fyrir að ryðja brautina og hefur Ísland verið í fararbroddi í jafnréttismálum á heimsvísu.

Meðlimir KÖTLU fá að njóta margvíslegra viðburða á borð við leiðtogadag, ýmis leiðsagnar prógröm eins og mentora prógramið 2025 og svo framvegis. Meðlimir félagsins eru nú um 200 talsins og stjórnarmeðlimir eru 13.

Stjórnarkonur KÖTLU eru nú 13 talsins úr íslenska atvinnulífinu í Kaupmannahöfn.

Mentorprógramm KÖTLU 2025

Mentorprógramm KÖTLU er vettvangur fyrir meðlimi félagsins til að tengjast þekktu athafnafólki úr íslensku atvinnulífi og aukið þekkingu sína og hæfni undir leiðsögn mentor.

Þú getur kynnt þér mentora KÖTLU árið 2025 hér fyrir neðan.