Ungar íslenskar athafnakonur í Kaupmannahöfn

Mentorprógramm KÖTLU

MENTORAR 2026


Aldís Guðný Sigurðardóttir
Prófessor, stundakennari og fyrrum forstöðumaður EMBA við Háskólann í Reykjavík

Lesa meira um Aldísi Guðnýju Sigurðardóttur

Dr. Aldís G. Sigurðardóttir er lektor og fyrrverandi forstöðumaður Executive MBA við Háskólann í Reykjavík og gestarannsakandi við University of Twente í Hollandi. Hún kennir samningatækni á meistarastigi og hefur verið gestafyrirlesari við Harvard-háskóla og fleiri leiðandi evrópska háskóla. Rannsóknir hennar beinast að samningatækni, atferlishagfræði og samningum vegna netárása, með áherslu á árangur í viðskiptasamningum. Hún er löggiltur sáttamiðlari og starfaði áður hjá Ríkissáttasemjara við úrlausn flókinna vinnudeilna. Áður en hún hóf störf í akademíu stofnaði hún og stýrði fyrirtækjum á Íslandi og í Hollandi og býr yfir víðtækri reynslu af forystu og samningum í krefjandi aðstæðum. Hún veitir jafnframt fyrirtækjum ráðgjöf og þjálfun á sviði samningatækni og stjórnunar. Aldís lauk BSc‑prófi í viðskiptafræði, MSc‑prófi í alþjóðaviðskiptum og doktorsprófi í viðskiptafræði.


Ari Daníelsson
Forstjóri Skyggnis Eignarhaldsfélags hf.

Lesa meira um Ara Daníelsson

Ari Daníelsson er forstjóri Skyggnis Eignarhaldsfélags hf. og gegnir jafnframt stjórnarformennsku í nokkrum fyrirtækjum í eigu Skyggnis, þar á meðal Origo, Syndis, Helix Health, Advice Business Monitor og Aftra. Skyggnir fer með eignarhluti í 14 íslenskum tækni- og nýsköpunarfyrirtækjum þar sem starfa samtals um 450 sérfræðingar.

Hann var forstjóri Origo frá apríl 2024 til janúar 2026, en er nú aftur stjórnarformaður félagsins. Áður var hann stofnandi, framkvæmdastjóri og stjórnarmaður hjá Reviva Capital S.A. í Lúxemborg, sérhæfðu eignastýringarfyrirtæki með starfsemi víða um Evrópu. Ari hefur einnig gegnt fjölmörgum stjórnarstörfum í fyrirtækjum á fjármálamarkaði og í upplýsingatækni á Íslandi og erlendis á síðustu 25 árum.

Ari hefur komið að stofnun og uppbyggingu ýmissa sprotafyrirtækja sem frumkvöðull, fjárfestir og stjórnarmaður. Hann hefur einnig tekið virkan þátt í tónlistar- og menningarlífi á Íslandi og er nú stjórnarformaður Menntaskóla í Tónlist.

Ari er tölvunarfræðingur, með MBA frá Háskólanum í Reykjavík og viðbótarnám í stjórnarháttum alþjóðlegra fyrirtækja (IDP) frá INSEAD í Frakklandi. Hann er einnig með sveinspróf í rafeindavirkjun og einkaflugmannspróf.


Arna Harðardóttir
Forstjóri Helix Health

Lesa meira um Örnu Harðardóttur

Arna Harðardóttir er forstjóri Helix Health, nýstofnaðs íslensks sprotafyrirtækis í heilbrigðisgeiranum. Helix Health varð til út frá heilbrigðis lausnum Origo, sem er móðurfyrirtæki Helix Health. Arna hóf störf hjá heilbrigðislausnum Origo í nóvember 2020 sem yfirmaður sölu og markaðsmála. Hún tók síðan við stöðu framkvæmdastjóra og gegnir nú hlutverki forstjóra Helix Health. Arna er með BS-gráðu í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og MS-gráðu í viðskiptastjórnun frá sama skóla.


Atli Freyr Einarsson
Forstjóri DHL Express Denmark A/S

Lesa meira um Atla Frey Einarsson

Atli Freyr er forstjóri DHL Express í Danmörku og ber einnig ábyrgð á rekstri DHL Express á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum gagnvart yfirstjórn DHL í Evrópu. Hann hóf störf hjá DHL á Íslandi árið 1997 sem bílstjóri og eftir viðkomu í flestum deildum fyrirtækisins, ásamt því að útskrifast úr viðskiptafræði úr H.R. varð Atli framkvæmdarstjóri árið 2010. Árið 2017 fluttist hann svo til Danmerkur og tók við núverandi stöðu. Aðaláherslur Atla hafa verið að búa til sterka liðsheild en jafnframt umhverfi þar sem einstaklingar þrífast og ná árangri. Á undanförnum árum hefur DHL Express í Danmörku verið meðal efstu fyrirtækja í kjöri á bestu vinnustöðum í Danmörku (d. Danmarks Bedste Arbjedsplads). Atli hefur á undanförnum árum verið leiðbeinandi (e. facilitator) á leiðtoganámskeiðum DHL Express um víðan heim og verið mentor fyrir kollega í Evrópu, Afríku og Bandaríkjunum. 


Ástmundur Níelsson
VP of Bionic Solutions hjá Össur

Lesa meira um Ástmund Nielson

Ástmundur Níelsson hefur starfað hjá Össuri frá árinu 2010 og hefur frá árinu 2021 gegnt stöðu VP of Bionic Solutions í þróunardeild, þar sem hann fer fyrir þverfaglegu teymi um 40 sérfræðinga sem sinna vöruþróun á tölvustýrðum stoðtækjum Össurar (e. Bionics).  Á meðal ábyrgðarsviðs er öll skref vöruþróunar, allt frá hugmynd til framleiðanlegrar vöru sem uppfyllir allar þær alþjóðlegu kröfur sem eru gerðar til lækningatækja.  Ábyrgðarsviðið nær einnig yfir viðhald og endurbætur á þeim vörum sem eru þegar á markaði.  Frá árinu 2014 til 2021 starfaði Ástmundur sem yfirmaður framleiðslu á Bionics vörum Össurar og bar ábyrgð á framleiðslu, þjónustu og innleiðingu á nýjum vörum í framleiðslu.

Á árunum 2000-2010 starfaði Ástmundur sem verkfræðingur í vöruþróun hjá Marel við hönnun á skurðarvélum og tengdum tækjabúnaði í matvælaframleiðslu.

Ástmundur er með M.Sc. gráðu í vélverkfræði frá University of Michigan sem áherslu á hönnun og framleiðslu og B.Sc. gráðu í véla-og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.  


Dagný Engilbertsdóttir
Forstöðumaður stefnumótunar á skrifstofu forstjóra hjá Festi

Lesa meira um Dagnýju Engilbertsdóttur

Dagný er forstöðumaður stefnumótunar á skrifstofu forstjóra hjá Festi. Þar styður hún við stefnumótun móðurfélagsins og verkefni á borði forstjóra. Dagný starfaði áður sem verkefnastjóri stefnumótunar hjá Ørsted, stærsta orkufyrirtæki Danmerkur. Þar áður, árin 2019-2021, var hún ráðgjafi hjá McKinsey & Company í Kaupmannahöfn. Dagný er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og er með MBA frá IESE Business School í Barcelona.


Edda Hermannsdóttir
Forstjóri Lyfja og Heilsu

Lesa meira um Eddu Hermannsdóttur

Edda er forstjóri Lyfja og heilsu. Hún starfaði áður sem markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka, og einnig sem aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins, þar sem hún vann markvisst að því að auka vægi kvenna í viðskiptafréttum. Edda var einnig spyrill i Gettu Betur hjá RÚV og hefur gefið út bækurnar Forystuþjóð og Framkoma. Í bókinni Forystuþjóð, sem Edda skrifaði með Ragnhildi Steinunni, er rætt við þjóðþekkta einstaklinga um jafnréttismál. Í bókinni Framkoma fer Edda yfir helstu atriði í hvers kyns framkomu og tekur viðtöl við fólk sem vant er að koma fram. Edda er hagfræðingur með stjórnendagráðu frá IESE í Barcelona og er stjórnarformaður UNICEF á Íslandi.


Elín Tinna Logadóttir
Framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi

Lesa meira um Elínu Tinnu Logadóttur

Elín Tinna Logadóttir hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi frá september 2025 og fer með ábyrgð á öllum tekjustoðum félagsins á heimamarkaði. Hún hóf störf hjá fyrirtækinu árið 2008 og sinnti þar fjölbreyttum stjórnunar- og ábyrgðarhlutverkum fram til ársloka 2022. Þar á meðal var hún framkvæmdastjóri heildsölu- og fyrirtækjasviðs, auk þess að leiða mannauðs- og þjónustumál fyrirtækisins. Áður en hún tók við núverandi starfi var hún framkvæmdastjóri Útilífs, þar sem hún bar heildarábyrgð á rekstri félagsins. Elín er með B.A.-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og býr yfir víðtækri reynslu í stefnumótun, rekstri og teymisstjórnun á bæði innlendum og alþjóðlegum vettvangi.
Það sem Elínu finnst mest áhugavert í starfinu er að ná raunverulegum árangri með skýran fókus og sterku teymi. Það að byggja upp sterka liðsheild og skapa umhverfi þar sem fólk nær að blómstra og skila sínu besta er líka stór hluti af því sem veitir henni ánægju í starf


Elva Guðrún Guðjónsdóttir
Framkvæmdastjóri markaðsmála hjá Annata

Lesa meira um Elvu Guðrúnu Guðjónsdóttur

Elva Guðrún Guðjónsdóttir er framkvæmdarstjóri markaðsmála (CMO) hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Annata, þar sem hún leiðir alþjóðlegt markaðsteymi og ber ábyrgð á markaðsstarfi og “revenue operations”. Hún hefur 18 ára reynslu úr tæknigeiranum á sviði markaðs- og vöruþróunar og tekur virkan þátt í stefnumótun fyrirtækisins. Í starfi sínu vinnur hún náið með alþjóðlegum samstarfsaðilum, meðal annars Microsoft. Áður starfaði hún í átta ár hjá Vodafone sem forstöðumaður vöruþróunar fyrir bæði B2B og B2C. Elva er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og situr í stjórn Kaptio.


Erla Sylvía Guðjónsdóttir
Framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá APRÓ

Lesa meira um Erlu Sylvíu Guðjónsdóttur

Erla er reyndur sérfræðingur í mannauðsmálum með sérhæfingu í stjórnendaráðgjöf, hæfileikastjórnun, ráðningum og samrunum innan tæknigeirans. Hún hefur sýnt fram á árangur í forystu mannauðsverkefna og háafkastateyma fyrir alþjóðleg fyrirtæki. Erla býr yfir djúpri þekkingu á starfsmannatengslum, launa- og fríðindamálum og skipulagsþróun. Erla hefur verið mannauðsstjóri ýmissa þekktra fyrirtækja á Íslandi en starfar nú sem framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá APRÓ.


Erna Hrund Hermannsdóttir
Markaðsstjóri og hlaðvarpsstjórnandi

Lesa meira um Ernu Hrund Hermannsdóttur

Erna Hrund hefur nýlega tekið stórum breytingum á sínum starfsferli og starfar nú hjá
Markar sem ráðgjafi í stefnumótun með áherslu á markaðsmál fyrirtækja og
vörumerkja. Samhliða því er hún þáttastjórnandi hlaðvarpsins hún, þar fær hún til sín
konur sem hafa náð langt í íslensku viðskiptalífi en auk þess tekur hún að sér minni
stefnumótandi verkefni sem snúa að þjónustu, vöruframboði og upplifun
viðskiptavina í verslunum.
Hún starfaði nú síðast hjá Ölgerðinni í 16 ár, síðast sem alþjóðlegur markaðsstjóri
COLLAB og mótaði markaðsstefnu fyrir útflutning vörumerkisins á erlenda markaði
og ásamt því að vera sölustjóri á Norðurlöndunum og leiða “go to market” stefnu fyrir
COLLAB í Danmörku. Þar áður starfaði hún sem vörumerkjastjóri fyrir L’Oréal á
Íslandi. Síðustu 14 ár hefur Erna Hrund einnig verið áberandi á samfélagsmiðlum og
tekið þátt í því að þróa framsetningu á efni til áhrifavalda og dýpka tengsl á milli
þeirra og ólíkra vörumerkja. Erna Hrund hefur auk þess og stýrt umræðuþáttum í
sjónvarpi og komið að stofnun nýrra vörumerkja.
Erna Hrund er með MBA frá Háskóla Íslands og hefur setið kúrsa hjá IESE í
Barcelona í leiðtogafærni og Yale School of Management í stafrænni
markaðssteningu eins er hún stafrænn markaðssérfræðingur frá Akademias og
viðurkenndur stjórnarmaður frá Deloitte.


Hildur Ársælsdóttir
Framkvæmdastjóri vöru- og markaðssviðs hjá Grænn

Lesa meira um Hildi Ársælsdóttur

Hildur Ársælsdóttir er markaðs- og vörumerkjasérfræðingur með yfir 17 ára reynslu úr alþjóðlegum snyrtivöruiðnaði. Hún hefur starfað með nokkrum af stærstu snyrtivörufyrirtækjum heims, þar á meðal L’Oréal og LVMH, og býr yfir víðtækri reynslu af uppbyggingu og þróun snyrtivörumerkja á norrænum og alþjóðlegum mörkuðum.

Í dag er Hildur framkvæmdastjóri vöru- og markaðssviðs hjá Grænn í eigu Matas Group, þar sem hún leiðir vöruþróun, vörumerkjastefnu og markaðssetningu fyrir snyrtivörumerki á Norðurlöndum.

Áður starfaði hún meðal annars sem framkvæmdastjóri alþjóðlegrar markaðs- og samskiptadeildar hjá BIOEFFECT og sem innkaupastjóri snyrtivörudeildar hjá Magasin du Nord.

Hildur stofnaði einnig Skin & Goods, sem sérhæfði sig í innflutningi og markaðssetningu snyrtivörumerkja á Norðurlöndum, auk ráðgjafar í vöruþróun og markaðssetningu fyrir fyrirtæki á borð við Bláa Lónið og ANGAN Skincare.

Hún er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og hefur einnig stundað sérnám í vöruþróun og markaðssetningu í snyrtivöruiðnaði við FIDM – Fashion Institute of Design & Merchandising í Los Angeles. Jafnframt hefur hún lokið námi í alþjóðlegum viðskiptum við ISG – Institut Supérieur de Gestion í París.


Hilmar Karlsson
Upplýsingastjóri (CIO) og yfirmaður viðskiptaferlastjórnunar & upplýsingatækni hjá Eimskip

Lesa meira um Hilmar Karlsson

Hilmar Karlsson er upplýsingastjóri (CIO) og yfirmaður viðskiptaferlastjórnunar og upplýsingatækni hjá Eimskip. Hann hefur starfað hjá Eimskip síðan 2017, en gegnt núverandi stöðu frá árinu 2018. Hilmar starfaði áður í yfir 10 ár hjá Arion banka í ýmsum stjórnunarstöðum tengdum upplýsingatækni. Hann var yfirmaður reksturs upplýsingakerfa frá 2006 til 2011 og síðar yfirmaður hugbúnaðarþróunar frá 2011 til 2017, þar sem hann bar ábyrgð á þróun netbanka, smáforrita og CRM-kerfa. Hilmar er með Cand.Sc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands, sem hann lauk árið 1997. Í stjórnun hefur hann lagt áherslu á styrkleikamiðaða nálgun byggða á Gallup Strenghts Finder, jákvæðum samskiptum, góðu skipulagi, góðri teymisvinnu og tíðum One-One fundum.


Karen Ósk Gylfadóttir
Fram­kvæmda­stjóri Lyfju

Lesa meira um Karen Ósk Gylfadóttur

Karen Ósk Gylfa­dóttir er fram­kvæmda­stjóri Lyfju og situr um leið í framkvæmdastjórn Festi, en hún gegndi áður starfi fram­kvæmda­stjóra vöru- og markaðs­sviðs og staf­rænnar þróunar hjá Lyfju. Karen Ósk er við­skipta­fræðingur frá Há­skóla Ís­lands og tók stjórn­enda­nám við Kellogg Nort­hwestern há­skólann vorið 2024. Hún starfaði áður í alls sjö ár hjá Nova, síðast sem markaðs­stjóri en gegndi einnig stöðu sölu- og þjónustu­stjóra og við­burða­stjóra. Karen var markaðssér­fræðingur í markaðs­deild Ís­lands­banka á árunum 2015-2017 á­samt því að koma að þjónustu­málum og stefnu­mótunar­verk­efnum bankans.


Katrín Olga Jóhannesdóttir
Framkvæmdastjóri Elmu orkuviðskipta

Lesa meira um Katrínu Olgu Jóhannesdóttur

Katrín Olga Jóhannesdóttir er í dag framkvæmdastjóri Elmu orkuviðskipta, sem rekur raforkumarkað fyrir skammtímaorku, svo kallaðan næsta-dags markað. Hún var fyrst kvenna kosin formaður Viðskiptaráðs Íslands og hefur mikla reynslu sem leiðtogi í íslensku viðskiptalífi. Hún hefur setið í fjölda stjórna, t.d. Icelandair Group, Högum, Advania, Ölgerðinni, Verði tryggingum, Landsneti, og bankaráði Seðlabanka Íslands, svo eitthvað sé nefnt. Katrín Olga hefur einnig góða reynslu frá stjórnunarstöðum í fyrirtækjum, þar á meðal hjá Símanum, þar sem hún leiddi stærsta svið Símans og fyrirtækið í heild í gegnum miklar breytingar. Katrín Olga var líka meðeigandi Já ásamt Sigríði Margréti Oddsdóttur, framkvæmdastjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Navision Island, sem var keypt af Microsoft, og svo mætti lengi telja. Hægt er að lesa meira um bakgrunn Katrínar Olgu á LinkedIn. Katrín Olga hefur tekið þátt í Mentorprógrammi KÖTLU frá byrjun og hafa margar konur nýtt sér þekkingu hennar og reynslu.


Katrín Jakobsdóttir
Formaður stjórnar Fasteigna Háskóla Íslands

Lesa meira um Katrínu Jakobsdóttur

Katrínu Jakobsdóttur þarf vart að kynna en hún er fyrrum forsætisráðherra Íslands og fyrrum formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Katrín situr nú sem formaður stjórnar Fasteigna Háskóla Íslands. Hún starfaði sem mennta- og menningarmálaráðherra frá árinu 2009 til 2013 og sem forsætisráðherra frá árinu 2017 til 2024. Katrín lauk BA prófi í Íslensku með frönsku sem aukagrein frá Háskóla Íslands og MA prófi í íslensku frá Háskóla Íslands. Katrín starfaði áður sem málfarsráðunautur á fréttastofum RÚV, kenndi í Endurmenntun HÍ og Mími. Hún var einnig ritstjóri Eddu útgáfu og JPV útgáfu. Þá starfaði hún sem stundakennari við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Menntaskólann í Reykjavík.


María Björk Einarsdóttir
Forstjóri Símans

Lesa meira um Maríu Björk Einarsdóttur

María Björk er forstjóri Símans en áður var hún fjármálastjóri Eimskips. Þar áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags, eitt af stærstu fasteignafélögum landsins, en hún leiddi félagið í sjö ár, allt frá stofnun þess. María Björk hefur einnig starfað sem sérfræðingur í sérhæfðum fjárfestingum hjá Gamma Capital Management árin 2013-2014 og sem sérfræðingur hjá Íslandsbanka árin 2012-2013. María Björk er með B.Sc. í rekstrarverkfræði með áherslu á fjármál frá Háskólanum í Reykjavík og er með próf í verðbréfaviðskiptum.


Ragna Kristensen
Global Director Marketing Communications hjá Embla Medical,
móðurfélagi Össurar

Lesa meira um Rögnu Kristensen

Stýrir í dag framleiðslu á alþjóðlegu stefnumótandi markaðsefni hjá Embla Medical, eiganda Össurar, og er staðsett í Aarhus. Hefur yfir 25 ára reynslu hjá Össuri í fjölbreyttum hlutverkum innan sölu, markaðsmála og vörustjórnunar. Sala og markaðsmál hafa verið rauður þráður í starfsferlinum, með fjölbreyttum stjórnunar- og stefnumótunarhlutverkum á alþjóðavettvangi.

Ragna starfaði meðal annars sem sölu- og markaðsstjóri fyrir APAC-svæðið og síðar með ábyrgð á vaxtarmörkuðum, þar á meðal í Suður-Ameríku og Suður-Afríku. Sex ár í búsetu og starfi í Shanghai veittu dýrmæta og beina innsýn í Kína og APAC-svæðið í heild.

Leiðir í dag fjölbreytt alþjóðlegt teymi sérfræðinga af átta þjóðernum í sex löndum. Helstu styrkleikar felast í leiðtogahæfni í menningarlega fjölbreyttu umhverfi, breytingastjórnun og starfi í flóknu alþjóðlegu rekstrarumhverfi.

Ragna hefur mikinn áhuga á leiðtogafærni, alþjóðlegri markaðsstefnu og uppbyggingu árangursríkra teyma þvert á menningu og landamæri, og hefur einnig veitt ráðgjöf og handleiðslu á þessum sviðum.


Salóme Guðmundsdóttir
Framkvæmdastjóri Ísorku
Stjórn Fossa og Viðskiptaráðs

Lesa meira um Salóme Guðmundsdóttur

Salóme er framkvæmdastjóri Ísorku sem rekur eitt stærsta hleðslunet fyrir rafbíla á Íslandi og leiðir þar umfangsmikla endurskipulagningu á rekstri félagins. Hún tók við starfinu árið 2025 en frá árinu 2014 hafði hún starfað í hringiðu nýsköpunar og tækni, lengst af sem framkvæmdastjóri Klak – Icelandic Startups. Á árunum 2021 – 2023 sinnti hún fjölbreyttri ráðgjöf og sjálfstæðum verkefnum fyrir fjárfestingasjóðinn Eyri Ventures, þar á meðal stjórnarsetu, stuðningi við fjármögnun, samskiptum við fjárfesta og mati á fjárfestingartækifærum. Þá gengdi hún stjórnunar- og leiðtogastöðum hjá nokkrum ört vaxandi íslenskum tæknifyrirtækjum á árunum 2023 – 2025 þar sem helstu verkefni fólu í sér stuðning við stefnumótun, alþjóðlega sókn og framkvæmd viðskipstastefnu. Salóme var einnig forstöðumaður Opna háskólans í HR á árunum 2011-2014. Salóme starfaði sem leiðbeinandi við MBA nám Háskólans í Reykjavík á árunum 2021 – 2025 þar sem hún hafði umsjón með lokaverkefni MBA nema í samstarfi við MIT háskóla. Hún hefur víðtæka reynslu af ýmsum nefndar- og stjórnarstörfum í íslensku atvinnulífi. Hún er m.a. stjórnarformaður Kadeco, en félagið sem er í eigu íslenska ríkisins hefur það markmið að efla erlenda fjárfestingu og uppbyggingu svæðisins í kringum Keflavíkurflugvöll. Salóme er jafnframt stofnandi og formaður félags Kvenna í stjórnum – Women on Boards Iceland. Salóme er með BSc próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og lauk AMP stjórnendanámi við IESE í Barcelona árið 2019.


Selma Svavarsdóttir
Forstöðumaður á skrifstofu forstjóra hjá Landsvirkjun, eigandi Heimilisfélagsins og formaður KÍÓ

Lesa meira um Selmu Svavarsdóttur

Forstöðumaður á skrifstofu forstjóra hjá Landsvirkjun og formaður KÍÓ. Selma er forstöðumaður á skrifstofu forstjóra hjá Landsvirkjun og hefur yfir 20 ára reynslu úr fjármála- og orkugeiranum. Hún hefur gegnt fjölbreyttum stjórnunarhlutverkum og starfað þvert á rekstur fyrirtækja. Á 12 árum hjá Landsvirkjun hefur Selma verið stjórnandi í mannauði og innri þjónustu, leitt jafnréttismál – þar á meðal jafnréttisvegferð Landsvirkjunar – og ber í dag m.a. ábyrgð á áhættustýringu, öryggismálum og umbótastarfi innan fyrirtækisins.

Áður starfaði hún í rúman áratug hjá Arion banka, meðal annars að markaðsmálum fyrirtækisins. Selma er formaður KÍÓ, félags kvenna í orkumálum, sem vinnur að auknum tengslum, sýnileika og áhrifum kvenna í orkugeiranum. 

Hún er með BS gráðu í viðskiptafræði og MBA gráðu.


Sesselja Ómarsdóttir
Forstjóri líftæknifyrirtækisins Genis hf. og prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands.

Lesa meira um Sesselju Ómarsdóttur

Sesselja Ómarsdóttir er forstjóri líftæknifyrirtækisins Genis hf. og prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands. Hún hefur yfir tuttugu  og fimm ára reynslu úr líftækni- og lyfjaiðnaði þar sem hún hefur leitt uppbyggingu rannsóknar- og þróunarstarfsemi, stýrt alþjóðlegum teymum og unnið að þróun og markaðssetningu nýrra líftæknilyfja- og lausna.

Áður starfaði hún í um áratug í stjórnunarstöðum hjá alþjóðlega líftæknifyrirtækinu Alvotech þar sem hún bar ábyrgð á umfangsmiklu þróunarstarfi og uppbyggingu rannsóknastofa og teymis sem unnu að þróun líftæknilyfja fyrir alþjóðamarkað. Hún hefur einnig komið að stofnun og uppbyggingu nýrra fyrirtækja á sviði líftækni og situr í stjórnum sprotafyrirtækja í greininni.

Sesselja hefur sérstakan áhuga á nýsköpun og því að byggja upp sterk teymi og fyrirtæki á grunni vísinda og tækni. Sem mentor veitir hún ráðgjöf um fyrirtækjauppbyggingu, stefnumótun, leiðtogahlutverk og hvernig þróa má vísindalegar hugmyndir yfir í raunhæf viðskiptatækifæri.


Sigríður Olgeirsdóttir
Stjórnarformaður Nova og situr í stjórn Haga, GKG og Magnavita

Lesa meira um Sigríði Olgeirsdóttur

Sigríður hefur verið stjórnandi í hugbúnaðar- og hátæknigeiranum í mörg ár. Sigríður er í dag stjórnarformaður Nova og situr í stjórn Haga, GKG og Magnavita. Sigríður stofnaði Magnavita ehf ásamt Guðfinnu Bjarnadóttur og Benedikt Olgeirssyni árið 2022. Hún var sviðsstjóri þjónustu hjá Völku árið 2019-2021. Þar áður var hún framkvæmdastjóri rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka árin 2010-2019. Hún hefur einnig gegnt stöðu framkvæmdastjóra Ax hugbúnaðarhúss, forstjóri Humac ásamt því að stofna og byggja upp Tæknival í Danmörku. Sigríður er með AMP gráðu frá Harvard Business School, MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, rekstrar- og viðskiptanám hjá Endurmenntun HÍ og kerfisfræði frá EDB-skolen í Danmörku.


Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Framkvæmdarstjóri Kara Connect

Lesa meira um Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur

Þorbjörg Helga er frumkvöðull og fyrrverandi borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Hún sat í borgarstjórn frá árinu 2006 til ársins 2014. Þorbjörg Helga sat meðal annars sem formaður Umhverfis- og samgönguráðs, menningar- og ferðamálaráðs og leikskólaráðs. Hún stofnaði fyrirtækið Trappa ehf. og Kara Connect ehf. Hún er með BA-próf í uppeldisfræði frá Háskóla Íslands og MA-próf í námssálfræði frá Washington-háskóla í Seattle. Áður starfaði hún sem verkefnastjóri og kennari við Háskólann í Reykjavík og sem ráðgjafi menntamálaráðherra Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Þorbjörg Helga sat í Háskólaráði Háskóla Íslands og stjórn Lánasjóðs Sveitarfélaga. Hún sat í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, stjórn Sorpu, stjórn Strætó og var formaður hússtjórnar Borgarleikhússins.


Þórdís Anna Oddsdóttir
Framkvæmdastjóri fjármála hjá 66°Norður

Lesa meira um Þórdísi Önnu Oddsdóttur

Þórdís Anna er fjármálastjóri 66°Norður og ber ábyrgð á fjármálum og upplýsingatækni samstæðunnar. Áður starfaði hún sem forstöðumaður fjárstýringar hjá Landsvirkjun þar til í árslok 2021. Fyrir það starfaði Þórdís í fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka og þar á undan hjá Icelandair sem forstöðumaður tekjustýringar. Þórdís er með MS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Georgia Institute of Technology í Atlanta í Bandaríkjunum og BS gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.


Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé
Stofnandi og framkvæmdarstjóri Öldu

Lesa meira um Þórey Vilhjálmsdóttur Proppé

Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé er stofnandi og framkvæmdastjóri Öldu. Alda er hugbúnaðarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að meta og auka fjölbreytileika og inngildingu. Alda hugbúnaðurinn fór í loftið haustið 2023 og komst í lok þess árs á lista ráðgjafafyrirtækisins Gartner yfir leiðandi tæknilausnir sem bjóða upp á markmiðasetningu í fjölbreytileika og inngildingu. Hún hefur einnig starfað sem aðstoðarmaður innanríkisráðherra, framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar. Hún hefur tekið þátt í margháttuðum félagsstörfum og stofnaði m.a. V-daginn, sat í stjórn UN Women, íslenskri landsnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna, í varastjórn Jafnréttissjóðs, og í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar.  Hún stofnaði einnig umboðsskrifstofuna Eskimo Models og Ólöfu ríku, fyrirtæki sem framleiddi hönnunarleikföng og barnabækur. Þórey hefur mikla ástríðu fyrir útivist og ævintýraleit og hefur m.a. synt boðsund yfir Ermarsundið með Marglyttunum og þverað Vatnajökul (150km) á gönguskíðum. Hún er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Reykjavík og CEIBS viðskiptaháskóla, Sjanghæ.