Ungar íslenskar athafnakonur í Kaupmannahöfn

KATLA Nordic 5 ára 🎉

Þann 14. mars fagnaði KATLA Nordic 5 ára afmæli félagsins í sendiherrabústaðnum í Danmörku þar sem Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Danmörku, tók vel á móti félagskonum.

KATLA Nordic var stofnað af hópi metnaðarfullra kvenna árið 2020 með það að markmiði að efla tengslanet, auka þekkingu og hafa áhrif á samfélagið. Á síðustu 5 árum hefur KATLA stækkað og dafnað með þátttöku yfir 300 einstakra kvenna, haldnir hafa verið yfir 60 viðburðir, og í gegnum mentorprógramm KÖTLU hafa átt sér stað um 250 mentorsamtöl. Félagskonur, sem í dag telja um 120 konur, hafa með góðum árangri sóst eftir hærri launum, nýjum tækifærum og fjárfest meira í sínu eigin fjárhagslega sjálfstæði eftir vinnunna sem félagskonur vinna saman að á viðburðum KÖTLU.

Danskt samfélag á enn langt í land þegar kemur að launajafnrétti og áhrifastöðum, en meðal annars má geta að auður kvenna er 62% lægri en karla og aðeins 17% stjórnarmeðlima fyrirtækja eru konur. KATLA vinnur að því að breyta þessu með því að halda áfram að efla og styðja konur til áhrifa og taka þátt í umræðunni.

Skál fyrir KÖTLU Nordic og komandi árum saman! 🎉



Ljósmyndir: Heiða Rut Halldórsdóttir

Discover more from Ungar íslenskar athafnakonur í Kaupmannahöfn

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading